26 nóvember 2003

Þá er ég búinn að fá bréf frá Búnaðarbankanum dagsett s.l. mánudag, í tilefni af því að ég er traustur og skilvís viðskiptavinur bankans, með tilkynningu um að þeir kunni að meta viðskipti mín og að ég þar af leiðandi njóti betri kjara en áður en bankahneykslið mikla fyrir helgi kom upp á.

Það hafa semsagt verið lækkaðir yfirdráttarvextirnir um 1% sem þýðir að ég spara u.þ.b. 3.600 kr. á ári miðað við stöðu dagsins. Svo eru allskyns önnur kjör og tilboð sem mér bjóðast ef ég skuldset mig meira í bankanum, og á öllu þessu á ég að spara alveg rosalega.
Hmm?
Ble-si

Engin ummæli: