16 nóvember 2003

Þá fer bíllinn ekki í gang þegar ég þarf á honum að halda.
Mér er meinilla við að þurfa yfirleitt að nota bíl en þegar sonur manns sest að í einhverju úthverfi þá er manni nauðugur einn kostur að þurfa bíl.
Mér er meinilla við það.
Mér er líka meinilla við að eiga aldrei bíl sem ég get treyst á.
Að auki er mér meinilla við almenningssamgöngur á Íslandi því þær virka ekki.
Mér er meinilla við það að hafa yfirleitt vaknað í dag.
Mér er meinilla við að búa á þessu skeri.
Ég ætla bara að bíða hér heima og sjá til hvort bíllinn lagist ekki af sjálfu sér þó mér sé meinilla við það líka.
Ég hreyfi mig ekki héðan út fyrr en bíllinn hóstar sér í gang.
Það er búið að skera á plastið sem ég setti í stað brotnu rúðunnar eftir að þjófarnir brutu allt og brömluðu og mér er að sjálfsögðu meinilla við það.
Ble-si

Engin ummæli: