Base Camp ehf er einhversskonar kynningarfyrirtæki, almennatengsl eða einhver skollinn sem ég átta mig ekki alveg á og kann ekki að segja.
Allavega er þetta fyrirtæki með á sínum snærum risastóra kynningu eða móttöku fyrir einhverja erlenda aðila á Íslandi þann 6. desember. Um er að ræða einhverja hvataferð 300 einstaklinga úr ferðaþjónustukynningarfyrirtækjum hvaðanæva úr veröldinni.
Það verður semsagt húllumhæ í kringum þetta og fulltrúar fyrirtækisins voru víst á Ókindarkvöldinu og vilja frá galdraþema. Það kemur ekkert annað til greina hjá þeim eftir að hafa orðið vitni að performansinu á Ókindarkvöldinu.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli