15 nóvember 2003

Mikið er nú nýja mjólkurfernan orðin skrautleg og fín með íslensku jólasveinana í lit á öllum köntum.

Hvað skyldi biskupinn segja við þessu að vera með þessar rammíslensku þjóðsagnapersónur flissandi og skælandi sig á öllum hliðum mjólkurfernunnar sem finnst á hverju heimili landsins á öllum matmálstímum í stað grafalvarlegs Jesúbarns, hirðingja í stórum stíl, Maríum og Jósepum og hverskyns englum og himneskum verum sem finnast í stóru þykku þjóðsagnabókinni frá miðausturlöndum sem hann álítur eina sagnakverið sem vitna má í.

(Nú má anda)

Mér finnst þetta vera falleg mjólkurhyrna og mér finnst mjólkin inni í henni alltaf vera jafngóð. Samt finnst mér hún ekki nánda nærri jafngóð og bjór þó hún sé mikið betri útí kaffið.
Ble-si

Engin ummæli: