Ég er búinn að útbúa sér jólasölusíðu á heimasíðu Galdrasýningarinnar. Hún er svosem ekkert frábærlega æðisleg en plottið er að reyna að selja vörur eins og hægt er á höfuðborgarsvæðinu fyrir jólin með því að bjóða upp á fría heimsendingarþjónustu.
Það væri gaman ef þetta virkaði og það má endilega segja sem flestum frá þessu. Við verðum að reyna að fá jólasölumarkaðinn mikla norður á Strandir með einhverju móti.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli