Ég var grútsyfjaður upp úr miðnætti í gær og fór því snemma í rúmið. Vaknaði svo hress og kátur í morgun og brosti yfir morgunkaffibollanum. Dreif mig svo í föt og fór útí Sorpu með rusl sem hafði safnast í bílinn minn meðan á endurbyggingunni stóð hjá Veigari.
Svo ók ég í BYKO Kópavogi og verslaði nýjar hurðarskrár í sex hurðar í Akademíunni og skipti um þær.
Núna er ég ekki að gera neitt. Ég vildi óska að ég nennti að fara að laga til hérna heima hjá mér - en ég nenni því bara alls ekki.
Atli Már bróðir minn á afmæli í dag. Hann fæddist árið 1955. Ég veit ekki hvort hann er heima núna - en hann starfar sem flugvélstjóri hjá Atlanta og er yfirleitt alls staðar annars staðar en heima hjá sér.
Það hefur enginn hringt í mig í dag.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli