Í kvöld var kvöld hinna miklu heimsókna. Fór fyrst í Grafarvoginn að hitta krúsidúllurnar mínar og skila lyklinum að íbúðinni minn sem ég geymi þar til nota þegar ég læsi mig úti, en ég læsti mig einmitt úti þegar ég skrattaðist niðrá Stöð 2 í gær. Þau voru ekki heima svo það var ekki annað að gera en að setja lykilinn í póstkassann hjá þeim, svo hann sé á vísum stað næst þegar ég læsi mig úti. Það gerist svona fjórum sinnum á ári.
Þá ákvað ég að fara í kaffi til Árna litla bróður í Kópavoginum, en hann var ekki heima og ekki nokkur leið að ná í hann. Svo stefnuna tók ég til Rakelar og Óskars í hundrað og einum Reykjavík og þau voru náttúrulega heima, hress og kát.
Þar fékk ég þetta langþráða kaffi og bull yfir því.
Svona var nú ævintýri kvöldsins að mestu leyti og nú langar mig í köku fyrir svefninn.
Ég held að máninn sé hálffullur. Hann starir með morðglampa inn um gluggann hjá mér og reynir að hylja sig í skýjum öðru hvoru og heldur að ég fatti ekki hvað hann hugsar.
Það er smá scary.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli