Kominn dagur að kveldi. Skrapp í Kópavoginn í kvöld í heimsókn til Sigga og Gunnhildar. Það er alltaf gaman að hitta þau. Færði Sigga ör-afmælisgjöf. Hann á semsagt afmæli sama dag og Gróa amma. En er heldur yngri. Munar 57 árum. Viðbyggingin sem þau byggðu við húsið er orðin voða kósý.
Ég var hissa á því að það er snjór í Kópavogi. Svolleiðis er það ekki í vesturbænum.
Núna er einhver mynd í sjónvarpinu sem ég ætla að maula kex yfir.
Það er kominn nóvember. Veigar minn á afmæli 16. nóvember og Atli Már bróðir þann níunda. Veigar verður 21 árs. Hann og Hafdís voru að kaupa litla sæta íbúð í Grafarvoginum í vikunni.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli