26 nóvember 2003

Úti við er yndislegasta veður, heiðskýrt, kyrrlátt og bjart. Ég þarf að muna eftir að tala við innheimtustjóra Odda í dag og jafna málin vegna prentunar Angurgapa. Ég er ekki syngjandi sæll yfir þessum viðskiptum við fyrirtækið að þessu sinni og finnst þeir hafi komið svoldið í bakið á okkur. Ég samdi um vissan greiðsluprógress með bankatryggingu en var síðan stunginn í bakið og særður svöðusári fljótlega eftir það.

Ég næ því ekki hvers vegna en finnst líklegast að innheimtustjórinn hafi samið um eitthvað sem hún mátti ekki og stjórnendur fyrirtækisins hafi tekið hana á teppið. Þetta segir manni að ganga aldrei frá neinu munnlega í þesskonar viðskiptum.

Prentsmiðjan Oddi hefur fallið þó nokkuð í áliti hjá mér við þessi viðskipti og ég er hreint ekki viss um hvort ég mæli með því að beina viðskiptum þangað í framtíðinni.

En Angurgapi er ennþá til sölu og verður það eitthvað áfram.
Ble-si

Engin ummæli: