28 nóvember 2003

Við Dóra spjölluðum margt og mikið í gærkvöldi og fórum á kaffihús og spjölluðum meira yfir krús. Hún var stopp í bænum vegna einhverra bílavandræða en gat haldið áfram för sinni í morgun eftir viðgerðir. Þannig að hún er vonandi í góðum málum einhversstaðar á Hellisheiðinni þessa stundina.

Í dag er fallegt og bjart veður og sólin er lágt á lofti eins og endranær á þessum árstíma.

Ég er ansi smeykur um að galdrabúðamálið mikla taki einhverja aðra stefnu á morgun en vonir mínar stóðu til. Menn voru að vinna þar fyrir innan í allt gærkvöld. Gott ef þeir voru ekki bara að smíða einhverskonar afgreiðsluborð.
Ble-si

Engin ummæli: