23 nóvember 2003



Auðvitað er það ríkisstjórnin sem á upphafið að þessu bankahneyksli með einkavæðingaferli sínu. Það er einfaldlega ekki nógu djúpt hugsað og það er rasað of mikið um ráð fram þar sem ekki er tekinn nógu mikill tími í að hugsa málið.

Manni dettur í hug skrif fjölmiðla hér á landi undanfarin ár þar sem hneykslast er á Rússunum og aðferðum þeirra við að höndla nýtt frelsi. Þar hefur hugtakinu "rússneska mafían" löngum verið beitt í öllum íslenskum fjölmiðlum. Það hefur verið birtur listi yfir þessa "glæpamenn" og heilu fréttaskýringarnar á síðum dagblaðanna um siðleysi þeirra og græðgi. Þjófnaður segja kannski einhverjir - en það er tæplega hægt að stela því sem manni hefur verið gefið?

Hér á Íslandi birtist sama ferlið hjá forkólfum Kaupþings-Búnaðarbankans sem eru að nýta sér glufu sem kallað eru viðskiptafrelsislög eða eitthvað þvíumlíkt en er raunar lögleg græðgi studd af ráðandi stjórnvöldum. Þjófnaður hrópa kannski einhverjir - en er hægt að stela því sem manni hefur verið gefið?

Svo geisa þessir sömu stjórnmálamenn fram, þeir sem stóðu fyrir viðskiptafrelsislögunum eða hvað á að kalla þau, og segja að þó lögin séu svona eins og þau séu þá megi ekki fara bókstaflega eftir þeim - og biðja um hylli þjóðarinnar!!!

Þjóðin eru síðan svo afspyrnu klikkuð að hún neitar að horfa í gegnum skrípaleikinn og hyllir stjórnmálamennina og lofar.
Ble-si

Engin ummæli: