Það er bara allt að verða klárt þarna í Grafarvoginum. Í dag kláraði ég að flísaleggja eldhúsið, holið og anddyrið - búinn að fúga og allt. Allir parketlistar komnir á sína staði þannig að allt er að verða klappað og klárt.
Hjónakornin ætla að flytja inn á föstudaginn og ég á bara eftir að skipta um borðplötu á eldhúsinnréttingu - það geri ég á fimmtudaginn.
Svo er nú það.
Blótsteinninn mikli, sem má ekki tala um ennþá, er búinn í frumrannsókn hjá vísindamönnnum og það kom í ljós að í botninum á honum er sannarlega blóð. Þá er hann semsagt orðinn merkilegri en allt annað sem fundist hefur norðan Alpafjalla.
Framundan er skipulagning vegna steinsins mikla - barátta upp á líf og dauða við ónefnda ríkisstofnun sem allt þykist eiga. En samkomulagi er vel hægt að ná - með fýlu ef ekki öðru. Kannski verður bara allt bandvitlaust - en það er bara fjör - og auglýsing.
Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur maður nema einn skilji þetta "þrugl". En mér er sko sama . Eins og mér sé ekki sama? Mér er sko alveg sama.
Önnur tíðindi eru þau að tímaritið Saga er komið út en þar er að finna grein sem Eggert Þór Bernharðsson skrifaði og heitir: Miðlun sögu á sýningum. Safna- og sýningaferð um Ísland 2002–2003.
Ég þarf að muna að fara á morgun niðrí Sögufélag og versla það.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli