23 nóvember 2003

Ég er viðskiptavinur Búnaðarbankans. Ja, það er kannski fullmikið að segja vinur - en ég er allavega með mín viðskipti við þann banka. Það kemur til vegna þess að ég hef alltaf verið í viðskiptum við þennan banka. En það er sannarlega engin ástæða til þess að vera þar - en ég er því miður ekki í þeim sporum að geta labbað í Búnaðarbankann og mótmælt þessari tilraun bankakólfanna til að eigna sér einhverja hundruð milljóna þar með því að taka út peningana mína. Ég á nefnilega ekki krónu inni á reikningnum mínum - og hef aldrei átt.

Það væri ansi hjákátlegt ef ég færi þar inn sótrauður af reiði með yfir 300.000 kall sem ég leggði á borðið og segði: " Hana, takiði þetta - ég er hættur viðskiptum við ykkur og ætla að borga upp yfirdráttarheimildina mína."

Skyldu hinir hrægammarnir í Landsbankanum, Íslandsbanka og Sparisjóðunum endilega vera tilbúnir að leggja þá aura til á eitthvað skárri vöxtum?

Nei, það er sama rassgatið undir þeim öllum og þeir ræna okkur allir á hverjum degi með okurvöxtum og óskiljanlegum þjónustugjöldum svo ég held bara áfram með viðskipti mín í Búnaðarbankanum þó hann hagi sér eins og bankinn í Helvíti hlýtur að gera.

En Búnaðarbankinn má nú eiga það að hann er með langbesta Heimabankann þó stjórnendur hans séu svín - grísir réttara sagt.
Ble-si

Engin ummæli: