26 nóvember 2003


Það er þetta með okrið og um hvað sé heilbrigt og hvað er brjálæði og hvað er okur og hvað lánastofnunum á Íslandi leyfist að komast upp með án þess að nokkur heilbrigð lög nái yfir þær?

Ég var að ganga frá láni í ónefndri bankastofnun.
Lánið hljóðar upp á 7.300.000.-
Andvirði lánsins er 7.043.100 að frádregnum lántökugjaldi og stimpilgjaldi ásamt óskilgreindum "kostnaði".

Heildarendurgreiðsla að 10 árum liðnum miðað við 4% vísitöluhækkun er:
kr. 13.250.491.-

Þannig að bankinn halar inn sex milljónir tvö hundruð og sjö þúsund þrjú hundruð níutíu og eina krónu á þessum viðskiptum.
Kr. 6.207.391.-
!!!

Er ekki kominn tími á blóðuga byltingu í þessu landi eða eigum við bara að láta nauðga okkur í rassgatið endalaust?*

Ble-si

Engin ummæli: