Draugasetrið á Stokkseyri opnar formlega í dag klukkan 17:00. Ég verð þar náttúrulega sem fulltrúi Galdrasýningarinnar og lýsi þeim veginn sem best ég get. Það stefnir í að ég ég verði með sýnikennslu í niðurkvaðningu. Er að hugsa um að ganga út frá því að galdramenn á Ströndum séu ánægðir með að geta sent draugana suðrá Stokkseyri, á safn, í stað þess að senda þá norður og niður. Því ekki viljum við vera orsök þess að draugar dagi uppi í þjóðarsálinni. Nóg sé að gert í þeim málum.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli