06 nóvember 2003

Það var eitthvað að gerast á vefnum í dag því 40 sinnum fleiri gestir heimsóttu heimasíðu Galdrasýningar á Ströndum í dag en að jafnaði. Átta mig bara alls ekki á því hvað er að gerast. Netið er semsagt ekki dautt.
Mjór er mikils vísir.

Á morgun fer ég á Stokkseyri og verð viðstaddur opnun Draugasetursins. Mér líst vel á það.

Veigar og Hafdís ætla að flytja í kvöld. Allt orðið klárt og fínt hjá þeim. Þau eru nú duglegir krakkar og skemmtilegir. Var að koma frá því að setja nýja borðplötu á eldhúsinnréttinguna hjá þeim. Svo ætla þau að bjóða gamla manninum heim næsta laugardag og elda oní hann steik og fínheit. Það er sko ekki amalegt.
Ble-si

Engin ummæli: