Æi, er þetta ekki bara rugl að vera að standa í þessu bloggi? Maður hefur raunverulega ekki neitt að skrifa um af því að þetta er ekki raunveruleg dagbók. Í raunverulega dagbók nótar maður sínu dýpstu hugsanir og þrár, nokkuð sem maður gerir ekki á opnu bloggi. Allavega ekki ég. Maður veit aldrei hverjir detta inn á þessar síður og ekki vill maður galopna sig varnarlausan gagnvart hvaða lúsablesa sem er.
Ég hélt dagbók til margra ára um tvítugt og var einmitt að blaða í þeim um daginn.
"Heilaga guðsmóðir!" að maður færi að bera sig þannig fyrir opnum tjöldum eins og birtist á þriðju hverju síðu í þessum gömlu dagbókum. Ljóti lifnaðurinn á ungum manni. Hneyksli! Ég yrði æfur og verulega áhyggjufullur ef börnin mín eyddu unglingsárunum í svona rugl og þvælu.
Hvað um það. Ég ætla að grípa niðrí saklausa færslu í dagbókinni sem var skrifuð þann 14. maí 1980.
Fór í enskupróf í morgun og mér gekk vel. Sigurborg hringdi í mig eftir prófið og sagði mér að ég yrði að klára ritgerðina í íslensku í dag, því ég hefði náð prófinu en myndi ekki fá það gilt nema ég skilaði ritgerðinni. Mér finnst þetta asnalegt að segja mér að ég hefði náð prófinu og síðan í næsta orði að ég hefði ekki náð því nema...! Ég tautaði og röflaði í henni smátíma sem var auðvitað ekki til neins svo ég labbaði með þessa fjárans ritgerð til hennar tæpum tveim tímum síðar. Svo fór ég í 4 bíó og svo á ball og datt ekki í það.
Þetta var saklaust.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli