Það er ekki laust við að ég sé smá stressaður og nervös yfir Ókindarkvöldinu í kvöld. Við fórum þó örlítið yfir málin á fundi í gærdag og niðurstaðan varð að Erpur myndi byrja og blása út og Steindór kæmi svo inn til hans - skömmu síðar myndi Erpur hlaupa út úr húsi því hann þarf að stjórna útvarpsþætti klukkan 10 - þá mun Steindór kveða dágóða stund þar til ég kæmi einhverntíman inn og myndi enda þetta. Hilmar aftur mun sjá til þess að það verði einhver tónlist undir þessu öllu hjá okkur. En hvernig þetta verður veit ég ekki. Vandi er um slíkt að spá.
Ég er að hugsa um að koma fram í síðasta skipti í kvöld í þessum ófrýnilega galdrabúningi - maður er einhverveginn hættur að stjórna þessu sjálfur auk þess sem þessi búningur fer í taugarnar á vissum einstaklingi.
Ég hlakka mest til að heyra í Sigga pönk. Hann er sko alvöru hávaðaseggur.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli