21 nóvember 2003

Gott var að vakna glaður og hress. Það voru miklar spekúleringar hjá okkur Áka á Hressó í gær. Afar gáfulegar samræður um allt milli himins og jarðar, allt frá bjórbruggi til hentugustu sendiherra Íslands í Afríku. Það var bara eins og við stjórnuðum heiminum og því miklar og áríðandi ákvarðanir teknar í þeim efnum. Gaman af því.

Það var ekki jafngaman þegar ég læsti hjólinu stuttu seinna fyrir utan indverskan veitingastað í Austurstræti og komst að því að tölulæsingin á lásnum hafði ruglast. Þá voru góð ráð dýr. Hjólið var fast við ljósastaur og ég gat ekki með neinu móti losað það. Ég lá yfir því í marga klukkutíma þar til mér tókst loksins að pikka upp lásinn og losa hjólið frá staurnum og hjólaði heim pungsveittur. Þá átti ég eftir að koma hurðinni á bókasafni RA þannig fyrir að það væri hægt að læsa henni. Með snörum handtökum kláraði ég það eins fljótt og auðið var og kominn í svefninn fyrir hálf-fjögur.

En nú er ég semsagt vaknaður glaður og hress og vantar ekkert nema nýjan lás á hjólið.

Það er rok og kuldi úti og frekar drungalegt. Nú væri gott að vera á Bahamas.
Ble-si

Engin ummæli: