Þau voru búin að útbúa allskyns gómsætar kökur og fínheit í tilefni af Veigari 21 árs. Aldeilis fín veisla hjá þeim. Ég færði honum verkfærakistuna miklu fulla af allskyns verkfærum og hann var kátur með það. Nú getur hann líka farið að gera við bílinn minn - kannski. Hehehe.
Svo fórum við Veigar saman í keilu en hann ætlaði sér að ná af mér titlinum mikla - en - en - en það tókst ekki. Hehehe.
Gamli maðurinn vann enn og aftur þó hann hafi ekki farið í keilu í vel yfir ár og hinn búinn að fara mörgum mörgum sinnum. Hehehe.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli