19 nóvember 2003

Ég var að fá tilkynningu með tölvupóstinum að ég hefði unnið milljón dollara í einhverju net lotteríi. Það er gaman að því. Ég sendi þeim strax tölvupóst til baka og bað um að tékkinn yrði sendur til mín með næsta pósti.

Svona hljóðaði upphaf bréfsins:

"Sir/Madam
We are pleased to inform you of the result of the Lottery Winners International programs held on the 18/11/03.
Your e-mail address attached to ticket number 2758946-5896 with serial number 1202-510 drew lucky numbers 7-14-88-18-31 which consequently won in the 1st category, you have therefore been approved for a lump sum pay out of US$ 1,000,000.00 (One Million United States Dollars)
CONGRATULATIONS!!!
"

Svo tók eitthvað við um það að ég ætti ekki að segja neinum frá þessu fyrr en ég hefði peninginn í höndunum. Ég ætla náttúrulega að steinþegja yfir þessu og gef hverjum sem þegir með mér hálfa milljón ISK fyrir viðvikið.
Mikið var ég nú heppinn. Nú get ég kannski fengið mér eftirrétt eftir jólakótilettuna.
Ble-si

Engin ummæli: