23 nóvember 2003

Það er eitthvað grunsamlegt á seyði. Síminn er búinn að hringja í mig margoft í dag og alltaf verið skellt á þegar ég hef svarað. Ég hef fram að þessu trúað því og haldið að það væri eitthvað ólag á símakerfinu frá útlöndum, þar til nú nýlega að það svarar dimm og ólánssöm karlmannsrödd eftir að ég hef ítrekað hallóað í símann og spyr mig hver ég sé með leyfi. Ég nefni nafn mitt og þá bara skellir hann á.

Skildi ég hafa verið að gera eitthvað sem ég veit ekki um? Hmmm? Grunsamlegur misskilningur í gangi einhversstaðar.

Anyway - sama er mér. Ég fór í fínan göngutúr í dag og náði mér í mikið af fersku lofti sem ég síðan eyðilagði með fjöldan allan af sígarettum þegar ég kom heim. En mér sko jafnsama um það og þessar símhringingar. Það er nóg til af loftinu fyrir utan.
Ble-si

Engin ummæli: