17 nóvember 2003

Mikið fer það nú í taugarnar á mér þetta orðskrípi Stranddalavegur sem einhver Jónas á Bolungarvík eða Ísafirði eða í fjáranum fyrir vestan kom á.

Bévitans blábjánar. Blábjánar, blábjánar og aftur blábjánar!

(Drýp höfði og hristi það) Blábjánar!

Ég er sannfærður um það og hef aldrei vitað jafnvitlausa samsetningu á orði. Svo er þetta ekki einu sinni fyndið. Þvílík aulafyndni og hallærisskapur frá Helvíti. Ef að menn vilja búa til orð þá eiga menn að gera þau með einhverju viti en sleppa því ellegar.

Svo lepur bb.is sem ég taldi virðulegan fjölmiðil þetta upp eins og hann sé á launum hjá þeim í neðsta og hjálpar til við að útbreiða ósómann. Eins og ég er nú annars ánægður með þá.

Bévitans skrípi sem þetta eru þarna þarna fyrir vestan!

Ojbara.
Ble-si

Engin ummæli: