10 nóvember 2003

Ég nefndi það í morgun hér á blogginu mínu að líklega væri allt að fara til Helvítis. Líklega er það alveg rétt.
Fyrir nokkrum vikum samþykkti ég að taka þátt í dagskrá með Steindóri Andersen, Hilmar Erni og Erpi á Ókindarkvöldi í Iðnó á vegum Þjóðfræðingafélagi Íslands.

Aldrei ætlaði ég að vera í forsvari fyrir þetta. Það stóð aldrei til - enda er þetta ekki mín hugmynd. Undanfarna daga hefur þó verið einhver titringur hjá tónlistarmönnunum sem koma þarna fram. Allt mjög undarlegt. Ég held það hafi eitthvað með peninga að gera. Peningar senda nefnilega allt til Helvítis.

Svo hringir formaður þjóðfræðingafélagsins í mig rétt í þessu og segir mér að mæta upp á Stöð 2 og kveða niður draug í settinu í Íslandi í dag í kvöld klukkan 19:30 til að kynna Ókindarkvöldið n.k. fimmtudagskvöld. Ég veit ekki hvers er ætlast af mér þar - ég veit ekki einu sinni hvers er ætlast til af mér á Ókindarkvöldinu - ég hef varla hugmynd um hverjir koma þar fram. Hvað þá að ég viti klukkan hvað það byrjar. Eina sem ég veit er að Iðnó stendur við tjörnina í Reykjavík og að tjörnin er gruggug með fullt af öndum og svönum.

Ég er órólegur yfir þessu og veit ekki hvað skal gjöra. Ég ætlaði ALDREI að vera í forsvari fyrir þetta. Ég ætlaði heldur aldrei að taka peninga fyrir þetta. Peningar eru orsök alls ills.

Ég álpaðist að vísu til að segja formanni félagsins að ég vildi allt fyrir þau gera. Nema að eiga eitthvað frumkvæði. Svo er manni ýtt út í það út frá einhverju asnalegu loforði.

Hvað á ég að gera? Svar óskast. Núna! Áður en allt fer endanlega til Helvítis hjá mér.
Ble-si

Engin ummæli: