Mikið var þetta nú gaman að fara á Stokkseyri og fagna með þeim opnun Draugaseturins. Aðstendendurnir geta verið stoltir af framtakinu, því það er þeim til mikils sóma.
Og veitingarnar ... maður lifandi!
Húsnæðið er HUGE - og draugasetrið hefur alla möguleika á að bæta við atriðum án þess að það komi nokkuð niður á plássinu. Ábyggilega 1000 fkm.
HUGE!
Þetta er allt til fyrirmyndar og minnir reyndar meira á Sögusýninguna í Perlunni fremur en Galdrasýninguna svo ég taki tvö frábær dæmi. Þarna eru auk þess óteljandi möguleikar á lifandi sýningaratriðum eins og þær best geta gerst. Svei, mér þá - ótrúlegir möguleikar í gangi þarna - og þetta er rétt að byrja.
Ja, svei mér alla daga. Ég spái þeim ekki undir 25.000 manns á ári. Annað væri skandali.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli