Ég hef aldrei verið mikið fyrir að senda jólakort, sem hefur hingað til stafað af fullkominni leti fyrir jólin. Svo upplifi ég aftur og aftur jól eftir jól sama samviskubitið yfir því þegar ég lít á hrúguna af jólakortunum sem stíluð eru á mig.
Ég sendi því hér með öllum sem ég þekki og þeim sem vilja þekkja mig hugheilar jólakveðjur sem eiga helst að duga langt fram á næsta ár.
En nú förum við að baka smákökurnar og græja forrétt kvöldsins því bráðum koma blessuð jólin. En fyrst verð ég að fara að kaupa kaffi og brauð. Það er að vísu allt á floti hérna í kringum húsið eftir meiriháttar sjógang í nótt við Ánanaustin og rottur um allt að því er mér skilst af fréttum mbl.is í morgun.
Ég hef ekki áhyggjur af því og finnst það bara jólalegt og ímynda mér bara að ég mæti hreindýri ef ég sé eina á vappi.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli