17 desember 2003

Ég ákvað að líta á fjölskyldusíðuna miklu þar sem von er á nýjum einstaklingi í fjölskylduna á næstu dögum. Þá komst ég að því að ég hafði ekki staðið mig sem skildi á þessu ári. Ég hef alveg gleymt (þar til núna) að færa Aron Jóel frænda okkar inn sem fæddist þann 28. apríl s.l. Hann er sonur Rebekku en hún er dóttir Atla Más sem er bróðir okkar systkynanna nema sjálfs síns.

Nú er hann semsagt kominn inn, en hann er eini fjölskyldumeðlimurinn sem fæðist í apríl mánuði í meira en 100 ár. Mér finnst það stórmerkilegt að enginn fjölskyldumeðlimur skuli hafa fæðst í apríl á síðustu öld.

Það er sko greinilegt að fengitími þessarar fjölskyldu er ekki í júlí.
Ble-si

Engin ummæli: