14 desember 2003

Jæja, þá eru þeir búnir að finna Saddam Hussein ofan í einhverri holu í jörðinni og búnir að handtaka hann. Það hlýtur að vera léttir fyrir meirihluta írösku þjóðarinnar. Ég óska henni til hamingju með daginn.





Það sem mér fannst aftur á móti ekki við hæfi var að forsætisráðherra Íslands nánast fór fram á dauðadóm yfir honum í viðtali í hádegisfréttum Útvarpsins. Hvað sem um það má segja þá er ekki við að hæfi að forsætisráðherra lýðræðisríkis sem stundar ekki dauðarefsingar undir neinum kringumstæðum, skuli tala svona óheppilega.
En þetta hefur nú alltaf verið svo skemmtilegur leikur fyrir honum.
Ble-si

Engin ummæli: