12 desember 2003

Ég var aldrei búinn að setja inn í minnisbankann minn hér gærkvöldið. Ég fór semsagt í hjólreiðatúr í gærkvöldi og hjólaði út með ströndinni. Maggi hringdi í mig og sagði að þau Attý væru að fara að fá sér einn öl fyrir háttinn og spurði hvort ég væri ekki til í að koma með.

Ég hélt það nú, breytti áætlun og tók kompásstefnu á Ölstofu Kormáks og Skjaldar þar sem ég hitti þau. Stuttu síðar birtist Árni Páll með kunningja sínum og það urðu miklir fagnaðarfundir og hófst þar með drykkja. Þaðan fórum við á Næsta bar - staðinn sem ég ætlaði aldrei á aftur eftir að mér var hent þaðan út fyrir 15 mánuðum fyrir að bresta í söng. Þar var drukkið ótæpilega og endaði með því að við drógum með okkur heim til mín allskyns lið í partý. Þar var drukkið, duflað og tónað fram eftir öllu og ég komst ekki í svefn fyrr en klukkan sex í morgun.

Svo heilsan í dag hefur ekki lofað mér að koma neinu í verk. Ég fór og sótti hjólið niðrí bæ seinnipartinn.
Ble-si

Engin ummæli: