06 desember 2003

Ég er orðinn dauðkvíðinn kvöldinu nánast sagt, því ég er ennþá með þennan hryglulega hósta. Klukkan fjögur þurfum við Hilmar að fara að stilla upp og gera sándtékk. Svo þarf ég að undirbúa mig meira en vanalega. Reyna að ákveða meira en áður fyrirfram hvað ég ætla að segja og gera og vera búinn að þýða það nokkurnveginn yfir á ensku - svo það verði ekki of mikið um orðleysur, rugl og stam ofaní hóstaköstin sem ég tek.

Ég svaf þó vel í nótt í fyrsta skipti í langan tíma.

Erna systir er að spóka sig í Berlín þessa helgina. Það væri nú ekki leiðinlegt að vera þar með henni.
Ble-si

Engin ummæli: