12 desember 2003

Ég tek heilshugar undir með Sigga á Stóra Fjarðarhorni. Samgöngubætur á landsbyggðinni ættu fyrst og fremst að miðast við daglegar samgöngur og þarfir innan héraðs. Um það hlýtur málið að snúast að fólk geti sinnt sínum daglegum erindum - frekar en að byggja hraðbrautir út og suður burt úr héraðinu. Fáránlegt að allt vegakerfi miði að því að það sé sem styst til Reykjavíkur. Fólk er ekki að fara þangað á hverjum degi. Það er að fara með börnin í skóla, á heilsugæslu, á pósthús og gera aðrar daglegar þarfir og því ætti það að vera grundvallarregla að íbúarnir geti það án þess að leggja líf sitt og limi í hættu í hvert sinn. Svo er hægt að hugsa um að bæta vegasamgöngur við önnur héruð.

Gefum okkur að það væru stórhættulegir og óökufærir vegir í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði eða bara hvar sem er í þéttbýli og eingöngu hugsað um að gera vegi til að fólkið gæti keyrt þaðan í burt.

Fárálegt.
Ble-si

Engin ummæli: