Ég sá Klæng sniðuga í Jóladagatali Sjónvarpsins í kvöld og ég skildi ekki eitt einasta orð sem var talað þar. Á tímabili var ég að velta því fyrir mér hvaða tungumál persónurnar töluðu og áttaði mig loks á því að þeir sem fara með hlutverkin eru bara svona agalega slæmir leikarar og reyndu eins og þeir gátu að tala eins og skrípi. En bara gátu alls ekki gert sig skiljanlega.
Klængur sniðugi var áberandi minnst skiljanlegur.
Það er ekkert barn á heimilinu hjá mér en ég er að velta því fyrir mér hvort að börnin hafi skilið eitthvað meira en ég hvað var sagt.
Ég held að leikararnir hefðu átt að slaka aðeins á í skrípaleiknum, þar sem þeir ráða ekki við þetta. Allavega hefði leikstjórinn átt að sjá til þess.
Vondur leikstjóri. Hver sem hann er. Þetta fer í taugarnar á mér - svo er ég lasinn.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli