Fór svo í bæinn að skoða í búðarglugga og skildi aftir móðu á nokkrum. Fylgdist svo með upphafinu á upplýsingu Oslóarjólatrésins á Austurvelli.
Mér fannst ekki mikið til koma þó ég heyrði rödd Gerðar B. Bjarklind.
Er ekki hægt að losa okkur við þessar sömu raddir sem hljóma í eyrum okkar daginn út og inn rétt á meðan kveikt er á einu aumu jólatréi?
Hvað um það.
Svo kom gamla barnið upp í mér og ég heimtaði af mér ís sem ég og fékk.
Stuttu síðar varð mér kalt og fór heim og varð rólegur eftir það.
Ísinn - gamli góði ísinn hjálpar alltaf, eins og amma sagði.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli