14 desember 2003

Ásdís Jónsdóttir heitir einn minn besti vinur. Hún er fædd norðan heiða og er sú allra jákvæðasta og bjartsýnasta manneskja sem fæðst hefur á þessu landi frá upphafi vega.

Nú var hún að fá svo yndislega hugmynd í gleði sinni yfir óvæntri gjöf frá syni sínum sem var að grisja úr dótinu sínu, og nú stefnir hún að því að sofa í tjaldi á jólanótt.

Þetta finnst mér frábært. Aldeilis gjörsamlega. Það er gaman að lesa Snúllu á sunnudagsmorgnum. Það gerir tilveruna einfaldari.
Ble-si

Engin ummæli: