09 desember 2003

Ég er búinn að ákveða dagskrá kvöldsins. Hún hefst semsagt á Súfistanum í Hafnarfirði stundvíslega klukkan átta. Súfistinn er við Hafnargötuna í Hafnarfirði skábeint á móti gamla Hafnarfjarðarbíói sem hýsir núna Kvikmyndasafn Íslands.

Ég man þegar ég var lítill þá fór ég einu sinni þangað að sjá Gög og Gokke. Það voru nú skrítnar skringiskrúfur.

Steindór Andersen kemur líka fram og einnig þjóðlagasveitin Bardukha sem ég þekki hvorki haus né sporð á.
Ble-si

Engin ummæli: