Það er kominn tími til að þvo þvott á þessu heimili. Það hefur ekki verið gert lengi, svo fatahrúgan hefur safnast upp á þvottahúsgólfinu eins og það sé líkast því að ég reki heimili með minnst fjögur börn. En því er ekki að heilsa.
Þetta gekk vel hjá okkur Hilmari í kvöld. Ég komst í gegnum þetta með því að þræla raddböndin hið ýtrasta og var gjörsamlega búinn á eftir. Þegar ég kom heim þá var ég svo þreyttur og slappur að ég steinsofnaði við eldhúsborðið yfir te-inu og svaf þar í tæpa tvo tíma.
Áheyrendur voru ánægðir en ég verð að viðurkenna að ég var ekkert yfir mig hrifinn. Forsalurinn á Nordica hefur afar slæman hljómburð auk þess sem ég hef aldrei verið hrifinn af því að skemmta fólki sem er bersýnilega með hugan við það að detta ærlega í það. Þar skiptir engu hvort talað er um Íslendinga eða útlendinga. Mannfólkið er allstaðar eins. Ef einhver vill meina annað þá bara veit sá hinn sami ekki betur og er fullur af einhverju rugli sem meikar engan sens eða veit ekki betur sökum rembings eða forheimsku.
Ég fékk svo margar einkennilegar spurningar frá svo mörgu fólki eftir á að ég varð nánast kjaftstopp og hafði á tilfinningunni að þarna hefði verið um að ræða hvataferð fyrir "topp þrjú hundruð" fæðingarfífl veraldar.
Búningsklefinn minn var inni í eldhúsi og ég var endalaust fyrir stressuðum þjónum og kokkum meðan ég klæddi mig í fötin aftur og það var hundleiðinlegt - eilífar undarlegar athugasemdir og augngotur frá staffinu, auk þess sem það virtist ekki alls ekki átta sig á því að þetta væri eini mögulegi staðurinn sem ég gæti striplast á.
Hvað um það. Þetta var ágætt og ég er feginn að þetta skuli vera búið. Nú get ég farið að einbeita mér að því að batna af flensunni og undirbúa grínkvöldið mikla á Súfistanum í Hafnarfirði á þriðjudagskvöld. Þar verður bara grín og fjör.
Mér þykir slæmt að ég skuli ekki eiga einn bjór til að slaka á yfir en ég nenni alls ekki á krá, því það geri ég helst aldrei á laugardögum. Ég þoli ekki bæinn um helgar. Eða öllu heldur fólkið í bænum um helgar.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli