11 desember 2003

Æ,æ, kaupauki æðstu ráðamanna þjóðarinnar var svo fyrirferðarmikill í Kastljósinu í kvöld þar sem Pétur Blöndal og Gylfi verkalýðskólfur töluðu svo mikið án þess að hlusta hver á annan, að bókagagnrýninni var ekki hleypt að. Það var slæmt því þetta átti að vera í síðasta skipti sem umfjöllun um jólabókaflóðið átti að fara fram í þættinum fyrir þessi jól og Angurgapi var þar á meðal.

Ansans óheppni.

Það sem er þó jákvætt er að það kom fram í máli Péturs (þó það hafi ekki komið málefninu við) að það var verið að fjalla um frumvarp á þinginu í dag um lækkun virðisauka á hljóðbókum. Ég er ánægður með það.
Ble-si

Engin ummæli: