Þær eru hrikalegar fréttirnar af ráninu í Bónus í gær. Undanfarið hafa þessir eiturlyfjasjúklingar látið sér nægja barefli eða hnífa til að fremja ránin. En þegar menn eru farnir að veifa byssum og taka menn í gíslingu með því að beina afsöguðum haglabyssum að höfðum þeirra í aftökustíl meðan þeir láta greipar sópa, þá er mælirinn fullur. Ég er smeykur um að þess verði ekki langt að bíða að íslenskum lögregluþjónum verði fengnar byssur og að þá fyrst verði fjandinn laus.
Löggan stóð sig þó vel í gær að handtaka þrjótana skömmu eftir atburðinn.
Önnur hrikaleg frétt er af Akranesi þar sem húsmóðirin brá sér út á videóleigu í hálftíma um kvöldmatarleytið og á meðan var hillusamstæðu með tíu einingum stolið úr íbúðinni hennar og börnunum hent til hliðar á meðan og svo reykspólað í burtu.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli