09 desember 2003

Ég rakst á grein eftir Joe nokkurn Yogerst sem er blaðamaður frá The San Diego Union-Tribune eftir heimsókn hans til Íslands í sumar.

Hann eins og flestir þeir sem koma til landsins kom upphaflega vegna hinnar alræmdu náttúrufegurðar. En eins og svo mörgum öðrum þótti honum mikið til koma ræktin sem lögð er við íslenskan menningararf víða um land.

Hann lýsir heimsóknum sínum á Eiríksstaði í Dölum og á Galdrasýninguna í greininni.

Ég er ánægður með Ellu. Hún hefur tekið á móti honum og staðið sig vel.
Ble-si

Engin ummæli: