Áki og Klara buðu mér í mat í gærkvöldi af tilefni þess að bjórinn hans er tilbúinn. Hann er efnilegur bruggari en bjórinn var ekta. Hann minnti mig sérlega mikið á Erdinger bjór, sem er öðruvísi þýskur bjór.
Atli litli var í góðum gír og sagði mér frá því að hann hefði hitt hana Grýlu í leikskólanum. Ég var alveg steinhissa því ég hélt að hún væri dauð. Svona veit maður nú lítið. Þetta er annað áfallið í þessari viku, því ég hélt að Saddam Hussein væri líka dauður.
Er það ekki í kringum páska sem allar þessar upprisur eiga að eiga sér stað?
Er það ekki í kringum jól sem á að vera vetur? Núna er til dæmis júní blíða.
Það er allt orðið á hvolfi og farið að snúa þveröfugt. Jahérna - ég held að þynning ósonlagsins hafi víðtækari áhrif en mér hefur verið talið trú um hingað til. Svo held ég líka að það sé bara ekkert að marka biblíuna núorðið.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli