16 desember 2003

Í gær voru nákvæmlega tvö ár síðan ég flutti hingað á Hringbrautina. Mér hefur liðið vel hérna. Hér væri ég til í að búa alla ævi. En það á eftir að koma í ljós og er reyndar ekki mjög líklegt.

Vonandi fer ég bráðum að byrja að taka til af einhverri alvöru hérna á kontórnum. Ég er að tefja of mikið við hvern smáhlut sem ég finn á gólfinu og hvern blaðsnepil sem ég rek augun í. Með þessu áframhaldi klára ég tiltektina kannski fyrir páska.
Ble-si

Engin ummæli: