Við erum búin að standa í ströngu í dag myndi einhver segja. En þetta er skítauðvelt fyrir okkur. Versla jólagjafir, pakka þeim inn, fara í Ríkið og bera búsið heim, kaupa jólamatinn og koma honum fyrir í sínum geymslum, gera jólaísinn og setja hann í frysti, gera vanillusmákökudeigið og setja það í frysti fyrir baksturinn í fyrramálið.
Svo nú er bara hægt að fara oní bæ og slaka á og sýna sig og sjá aðra, fá sér í eina krús hér og kannski aðra þar, og jafnvel þriðja til og kaupa síðustu jólagjöfina.
Jólin? Ekkert mál!
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli