Við erum ekki búin að vera að gera neina stórkostlega hluti frá því Cordula kom. Ég fór þó með hana hingað og þangað í gærdag. Í gærkvöldi fórum við ekkert, vorum bara heima í rólegheitum.
Í dag þarf ég aftur á móti að fara í mikinn verslunarleiðangur í Bónus. Það er komið að því að versla fyrir jólin.
Fanney kemur í kvöld og ég fer og sæki hana út á flugvöll. Hún ætlar að gista hjá mér líka svo það verður líf og fjör í kotinu. Hún ætlar síðan með rútunni til Hríseyjar á morgun og halda jólin sín þar.
Ég hef alltaf verið hrifin af Hrísey og á þaðan góðar endurminningar.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli