Við fórum í bíltúr í dag á Þingvelli. Það var nú svo hryllilega kalt þar að það lá við að það frysi undan mér. Svo ókum við á Selfoss og fengum okkur kakó og eplaköku á einu af mínum uppáhalds kaffihúsum á landinu.
Cordula fór á kostum þar í íslenskunni sinni. Hún óskaði þar afgreiðslukonunni gleðilegra jóla með þessum orðum:
- Leiðinleg hjól!
Afgreiðslan var ekki alveg að skilja hana en ég sprakk úr hlátri. Hún æfði sig síðan yfir Hellisheiðina og er farin að geta óskað öllum gleðilegra jóla á íslensku án þess að ég þurfi að flissa mikið.
Atli minn og Magga komu í heimsókn um það bil þegar við borðuðum kvöldmat og átu með okkur.
Hlynur frændi er tveggja ára í dag. Hann heldur upp á afmælið hjá afa sínum og ömmu í Horsens í Danmörku. Ég óska honum innilega til hamingju með daginn og ég er viss um að hann er ofsakátur eins og allir aðrir í kringum hann. Það er nefnilega ekki hjá því komið.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli