08 desember 2003

Fór og hitti Lóa, Magga og Attý á Celtic Cross yfir krús seint í gærkvöldi. Áki bættist í hópinn skömmu síðar. Það voru allir eins kátir og við mátti búast.

Við Áki sátum fam að lokun.

Verð að reyna að finna söluaðila á Akureyri í dag og senda honum bækur. Annað er vonlaust. Ég á líka eftir að ganga frá bókhaldi nóvember mánaðar.

Annað kvöld verð ég á Súfistanum í Hafnarfirði. Ég stefni að því að vera skemmtilegur og láta öllum illum látum. Þarf að ákveða eitthvað með það líka fyrir þann tíma.
Ble-si

Engin ummæli: