19 desember 2003

Dóra Lubesky kom til mín í gær og gisti hjá mér í nótt. Við lögðum á ráðin með eitt og annað í gærkvöldi með sérstakri áherslu á kynninguna miklu í Hannover í byrjun febrúar.

Nú er hún farin áleiðis í sveitina sína en þau hjónakornin fara síðan til Þýskalands á mánudaginn og verða þar með mömmu hennar yfir jólin. Á milli jólanna fara þau svo til Kúbu og eyða áramótunum þar ásamt fyrstu dögum nýs árs. Dóra er snillingur.

Það snjóaði þó nokkuð í morgun.
Ble-si

Engin ummæli: