Hvað er svo eftirminnilegast á árinu hjá mér?
Janúar: Ég var í Berlín yfir áramótin. Það var eftirminnilegt. Sérstaklega tilfinningin að vera innan um milljón manns klukkan tólf á miðnætti.
Febrúar: Ekkert.
Mars: Ekkert.
Apríl: Ekkert.
Maí: Það var gaman að hitta gömlu félagana úr Leikfélagi Hólmavíkur eftir sýningu þeirra á Sex í sveit í Tjarnarbíó.
Vinnan við margmiðlunardiskinn. Það var skemmtileg. Hann kom út í enda mánaðarins.
Júní: Sumaropnun Galdrasýningarinnar. Ég var og er sérlega ánægður með starfsfólkið.
Júlí: Heimsókn mín og uppákoma á Leifshátíð var skemmtileg.
Draugadagar Galdrasýningarinnar voru mjög vel lukkaðir. Þeir hófust í júlí og stóðu út ágúst um hverja helgi. Gaman þegar eitthvað ber áþreyfanlegan árangur.
Angurgapi kom út. Það var skemmtilegt og afar nauðsynlegt þó bókin sé búin að valda mér miklum áhyggjum síðan.
Ágúst: Tilnefning margmiðlunardisksins til margmiðlunarverðlauna SÞ. Það var mjög ánægjulegt, þó hann hefði ekki farið alla leið.
September: Ferðin til Póllands stendur upp úr. Siglingin frá Köben til Swinouchie. Lestarferðin þaðan til Kolbrzeg. Góða veðrið, ströndin og huggulegheitin. Svo ekki sé minnst á hjólaferðina um sveitirnar. Dvölin í Bremen er líka hlý endurminning og óvænt heimsókn mín til Ernu og Gísla til Horsens á leiðinni heim.
Haustfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða í Flókalundi var skemmtilegur og gagnlegur.
Október: Þegar biskupinn yfir Íslandi varð sér til skammar. Það var þó harla gagnlegt þegar upp var staðið.
Jón Jónsson valinn ferðafrömuður ársins. Það fannst mér stórkostlega skemmtilegt.
Það var brotist inn í bílinn minn. Það var draugfúlt.
Nóvember: Íbúðarkaup Veigars og Hafdísar. Það var eitt það allra skemmtilegasta á árinu. Gaman að hjálpa þeim.
Ókindarkvöld þjóðfræðingafélagsins í Iðnó. Mjög gaman að taka þátt í því.
Draugasterið á Stokkseyri opnaði. Gaman að vera viðstaddur.
Desember: Jólahlaðborð fjölskyldunnar á Kaffi Reykjavík. Hlý og góð endurminning í faðmi fjölskyldunnar. Það er ekki svo oft sem við tökum okkur saman.
Uppákoman okkar Hilmars Arnar á Nordica Hotel og ekki síður þjóðsagnagaldrakvöldvakan mín á Súfistanum í Hafnarfirði. Það var stórkostlega gaman.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli