Hér er matseðill jólahlaðborðsins í heild sinni.
Ég er himinlifandi með þetta og mætingin var góð. Við vorum þrettán þegar upp var staðið.
Ég mæli með Kaffi Reykjavík en staðurinn hefur fengið mikla andlitslyftingu og er orðið alvöruveitingastaður.
Mættir voru ásamt mér, Veigar, Hafdís, Atli, Magga, Hrafnhildur, Gummi, Karen, Kittý, Elísa, Símon, Árni og Ragnheiður.
Ekki amalegt lið það. Þetta er semsagt orðin hefð og mun eiga sér stað fyrsta fimmtudag desembermánaðar ár hvert.
Ég er ekki lengur lasinn heldur saddur og sæll. Nú get ég farið að skipuleggja laugardagsfjörið á Nordica.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli