03 desember 2003

Í dag var þriðji dagur í flensu. Sá allra allra versti. Þar sem ég er sannfærður um að þetta getur ekki orðið verra þá hlýtur flensan að skána á morgun. Ég er svo sannfærður um það að ég er búinn að boða stórfjölskylduna í jólahlaðborð á Kaffi Reykjavík annað kvöld kl. 19:30 enda er ég að drepast úr hungri eftir flensu síðustu dægra.

Það stefnir í góða mætingu miðað við að stór hluti fjölskyldunnar ýmist býr eða vinnur í útlöndum. Erna og Gísli í Danmörku, Klara, Hjörtur og Ragnhildur í Danmörku og Íris, Sævar og Hlynur í Þýskalandi og Atli Már er í Alsír þessa stundina og Gummi í Köben. Ragnheiður Harpa og Arna komast ekki vegna anna kirkjukórsins í Njarðvík.

Ég á von á því að flestir aðrir komi og að við fyllum allavega tíu manna hóp. Ég og synir mínir og tengdadætur komum, það eru fimm, Hrafnhildur og Gummi ásamt Karenu ætla örugglega að koma, þá eru komnir átta, Árni og Ragnheiður hafa boðað komu sína, það gera tíu og svo vona ég að Guðrún Harpa komi með Gumma og Hrafnhildi sem fulltrúi Atla Más leggsins. Þannig að kannski verðum við ellevu.

Kittý Arnars og Eyrún koma ekki og heldur ekki Kristinn og Kittý systir hans og Elísa Dögg. Rebekka og börn búa í Borgarnesi, en ég hálfskammast mín fyrir að hafa ekki boðað hana og hana Erlu Björk sem ég veit ekkert hvar ég finn og ég þekki ekkert. Það er synd því mig langar að kynnast henni. En það verður vonandi einhverntíman.
Ég ætti kannski að reyna að hafa upp á henni.

Það vantar náttúrulega algjörlega fulltrúa Ernu leggsins. Það er bara enginn fulltrúi þess leggjar á landinu öllu. Eiginlega ætti maður samt að boða einhvern fulltrúa fyrir hennar hönd.

En það koma bara fleiri næst.

Mikið hlakka ég til að fá jólahlaðborð - það er sko góður matur.
Ble-si

Engin ummæli: