11 desember 2003

Hér til hliðar er kominn flokkur sem ég nefni Gæðablogg. Þar undir komast bloggarar sem mér finnst bera höfuð og herðar yfir aðra í bloggheiminum.

Það hafa bara tveir komist þarna inn enn sem komið er, Siggi pönk sem skrifar mjög einlæglega um ýmis málefni og Toggi Pop sem ég rakst á fyrir nokkru. Sá drengur er sá allra mesti penni sem ég hef lesið á bloggi. Stórkostlegar sögur og frásagnir sem hann sendir frá sér. Mig langar sérstaklega að benda á frásögn sem hann skrifar þann 9.12.03. Aldeilis stórkostlega mögnuð og vel gerð. Hörðustu töffarar og harðjaxlar sleppa ekki ósnortnir frá henni. Svo getur hann líka verið alveg hryllilega fyndinn.
Ble-si

Engin ummæli: